
©Tomasz Þór Veruson
Gísli og Guðrún giftu sig í blíðunni í Hafnarfirði í júli. Þau gengu upp að altarinu í Fríkirkjunni á meðan sólin skein úti á einum heitasta degi þessa sumars. Hreint út sagt geggjaður dagur! Eftir athöfnina tókum við rúntinn, fórum á milli sveitarfélaga, hlógum og tókum helling af myndum áður en ég skilaði þeim á áfangastað og í frekara partýhald… : )
Hérna koma nokkrar til viðbótar. Síðasta myndin var tekin á Mamiyuna og Ilford 100 Delta Pro filmu…auðvitað kom filman með…hún bara varð…

©Tomasz Þór Veruson

©Tomasz Þór Veruson

©Tomasz Þór Veruson

© Tomasz Þór Veruson
Ragnar félagi minn er í átaki um þessar mundir…og litlu veðmáli, strákurinn verður að létta sig aðeins og draga fram six pakkan…annars þarf hann að dansa niður Laugaveg í kjól… : )
Að sjálfsögðu nýti ég mér þetta tækifæri og bý til smá seríu. Ég ætla að mynda strákinn vikulega og fylgjast þannig með árangrinum myndrænt. Nú skulum við bara vona að hann verði ekki fljótur að þessu svo serían lifi í einhvern tíma…mánuði eða jafnvel ár… : )
Hérna kemur ein í viðbót frá því um daginn. Þessi tvö skot voru tekin á Mamiyuna og Ilford 100 Delta filmu, útrunna. Seinni myndin sýnir dýptina í þessari vél ansi vel, fókusinn er á tattúinu en andlitið dettur í blur. Geggjuð vél!

© Tomasz Þór Veruson

© Tomasz Þór Veruson
Ég brunaði upp í sveit í júlí og hitti þar Bradley og Valgerði og fylgdi þeim upp að altarinu í Hlíðarendakirkju. Geggjaður dagur í sveitinni með skemmtilegu fólki. Takk fyrir mig!
Hérna koma tvær til viðbótar…

© Tomasz Þór Veruson

© Tomasz Þór Veruson
…þessa sumars eru komnar í hús…og mun fleiri á leiðinni.

© Tomasz Þór Veruson
Ekki amalegt að prófa þessa vél í Krýsuvíkinni og drunganum sem er þar oft á tíðum. Ég furða mig enn og aftur á því hvað MF filman skilar mögnuðum tónum og dýpt í myndunum, skuggasvæðin verða tær en kontrastmikil og háusvæðin brenna ekki út…dásamlegt!
Mamiyan er frábært verkfæri sem ég mun munda enn frekar á næstu dögum og vikum…og árum : )

© Tomasz Þór Veruson

© Tomasz Þór Veruson

© Tomasz Þór Veruson

© Tomasz Þór Veruson
Þessar voru allar teknar á útrunna (2003) Kodak 400TX.

© Tomasz Þór Veruson
Maður þarf ekki að fara langt frá bænum til þess að komast í gott berjamó…og ekki að tína á stóru landssvæði.
Bláber, krækiber, aðalbláber, hrútaber og jafnvel jarðaber…þessi öll tíndi ég á ca. 3fm. svæði…magnað!

© Tomasz Þór Veruson

© Tomasz Þór Veruson
Brand spanking new one…og nú með bernes…

© Tomasz Þór Veruson
Ég kokkaði fram þessa snilld fyrr í sumar úr afgöngum sem til voru í ísskápnum. Voða einfalt en samt massíft. Rosalega holt líka…
Hráefni:
- Langlokur
- Beikon
- Pulsur
- Ostur
- Tómatur
- Rauðlaukur
- Sýrðir sveppir
- Bernessósa
Á meðan pulsan og beikonið grillast er brauðið smurt með bernes og grænmetið lagt á. Ofan á það kemur kjötið og svo osturinn. Þessu er síðan skellt á grillið og brauðinu leyft að ná hita, þangað til að osturinn bráðnar vel.
Einfalt og frekar holt…þökk sé tómatinum…. : )