Erna @ Stúdíó Zet

by Tomz on August 22, 2010


Erna II
© Tomasz Þór Veruson


Í tilefni af nýja útlitinu á síðunni koma hérna tvær myndir af Ernu sem við tókum fyrir viku síðan. Mér til taks var Masha makeup og hár snillingur.

Undanfarið hef ég verið að skjóta mikið í stúdíóinu enda mikið um frían tíma. Ef einhver þarna úti er með flotta hugmynd sem hann/hún vill framkvæma þá ekki hika við að henda á mig línu og segja frá, tomz@tomz.se : )

Annars kemur hér ein mynd til viðbótar af Ernu, fleiri koma síðar.

Módel : Erna G
Hár & makeup : Masha


Erna I
© Tomasz Þór Veruson


Nýtt útlit

by Tomz on August 22, 2010

Þá er komið að þeim tíma árs að maður gefi sér tíma og breyti um útlitið á þessari síðu, hef gert að 1-2 á ári undanfarið. Síðan tekur töluverðum breytingum að sinni, fer úr dökka útlitinu í ljóst, með mun færri síðum á bakvið. Nú er allt, sem hægt er að skoða, á forsíðunni. Efst í hausnum eru myndaflokkarnir sem leiða áfram á vefgallerý síðurnar. Mínímalískt og þægilegt finnst mér.


Screen shot 2010-08-22 at 15.17.06
© Tomasz Þór Veruson


María & Svava

by Tomz on August 17, 2010


María & Svava IV
© Tomasz Þór Veruson


Ég stökk um daginn upp í Krýsuvík með Maríu og Svövu og tókum við nokkra ramma í þessu magnaða umhverfi. Ómar kom með sem aðstoðarmaður og án hans hefði þetta orðið ansi erfitt því þrátt fyrir sólina og heiðskíra himininn var ansi mikið rok…aaansi mikið. Softboxið snérist í hringi og sandur fauk út um allt….mega stuð eins og vanalega í svona myndatökum : )

Hérna koma nokkur skot í viðbót.


María & Svava III
© Tomasz Þór Veruson


María & Svava II
© Tomasz Þór Veruson


María & Svava I
© Tomasz Þór Veruson


Ragnar…

by Tomz on August 16, 2010

…allur að koma til í átakinu sínu…tókum þessa í síðustu viku.


Ragnar
© Tomasz Þór Veruson


Gísli & Guðrún

by Tomz on August 13, 2010


Gísli & Guðrún III
©Tomasz Þór Veruson


Gísli og Guðrún giftu sig í blíðunni í Hafnarfirði í júli. Þau gengu upp að altarinu í Fríkirkjunni á meðan sólin skein úti á einum heitasta degi þessa sumars. Hreint út sagt geggjaður dagur! Eftir athöfnina tókum við rúntinn, fórum á milli sveitarfélaga, hlógum og tókum helling af myndum áður en ég skilaði þeim á áfangastað og í frekara partýhald… : )

Hérna koma nokkrar til viðbótar. Síðasta myndin var tekin á Mamiyuna og Ilford 100 Delta Pro filmu…auðvitað kom filman með…hún bara varð…


Gísli & Guðrún IV
©Tomasz Þór Veruson


Gísli & Guðrún II
©Tomasz Þór Veruson


Gísli & Guðrún I
©Tomasz Þór Veruson


Ragnar

by Tomz on August 12, 2010


Ragnar I
© Tomasz Þór Veruson


Ragnar félagi minn er í átaki um þessar mundir…og litlu veðmáli, strákurinn verður að létta sig aðeins og draga fram six pakkan…annars þarf hann að dansa niður Laugaveg í kjól… : )

Að sjálfsögðu nýti ég mér þetta tækifæri og bý til smá seríu. Ég ætla að mynda strákinn vikulega og fylgjast þannig með árangrinum myndrænt. Nú skulum við bara vona að hann verði ekki fljótur að þessu svo serían lifi í einhvern tíma…mánuði eða jafnvel ár… : )

Hérna kemur ein í viðbót frá því um daginn. Þessi tvö skot voru tekin á Mamiyuna og Ilford 100 Delta filmu, útrunna. Seinni myndin sýnir dýptina í þessari vél ansi vel, fókusinn er á tattúinu en andlitið dettur í blur. Geggjuð vél!


Ragnar II
© Tomasz Þór Veruson