Keilir…check!
Keilir í góða veðrinu í morgun…

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 35mm F/1.4L
Ég gekk upp á Keili í morgun í æðislegu veðri, 15°C hita og smá golu. Þetta var í fyrsta sinn sem ég geng upp á sjálft fjallið, hingað til hef ég einungis gengið um nágrenni þess og því var kominn tími til að sigra það.
Gangan byrjaði á Höskuldarvöllum, gekk þar meðfram hrauninu í ca. 4.5km. Það vildi ekki betur til að ég labbaði framhjá stígnum sem liggur yfir hrauntunguna og að sjálfu fjallinu, ég gekk því alltof langt sem gerði það erfiðara að fara yfir hvassa hraunið. Það hafðist þó og var ég kominn upp að fjallinu eftir ca. 7km skv. GPS tækinu. Þegar að því var komið sá ég einungis einn göngustíg upp og fór hann. Það er samt ekki rétt leið að ég held, þessi var mun erfiðari og brattari en hinn hefbundni stígur…komst að þessu eftirá þegar ég sá hinn á leiðinni niður
Á toppinn kom ég á góðum tíma, 1klst. og 13mín. Útsýnið frá Keili er magnað, sést vel í allar áttir og landslagið er stórbrotið.
Leiðin niður var auðveld, ég fór hratt niður göngustíginn og var kominn aftur á bílastæðið á tímanum 2klst. og 13mín., 11km. seinna. Flottur tími bara. Mæli með þessari göngu og þá sérstaklega að fara upp fjallið frá hlið, mun skemmtilegra útsýni að mínu mati.
Hérna að neðan eru nokkrar myndir frá göngunni, smellið til þess að sjá þær stærri.
Sveifluháls – Take II
Ég reyndi aftur við Sveifluháls á sunnudag. Áður var ég búinn að reyna einu sinni, í vetur. Það gekk ekki betur en það að ég þurfti að snúa við vegna líkamlegs ástands. Að þessu sinni var sagan önnur…hún var bara svona…

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L
Veðrið var nú ekki upp á sitt besta þegar ég lagði af stað en úff…það varð bara verra. Eftir að hafa gengið rúmlega 4km. af 25km. ákvað ég að snúa við, á þeim tímapunkti var varla hægt að standa í lappirnar út af roki. Við það bættist rigning sem barði á manni reglulega…og við hana bættist svo þokan sem var að skríða upp á toppana…frekar magnað.
Sveifluháls verður því að bíða…aftur. Þó ekki lengur en í nokkra daga…nokkrar vikur.
Leggjabrjótur ‘09…check!

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L
Jæja, þá er fyrstu stóru göngu (af þremur) í sumar lokið, Leggjabrjótur var sigraður í dag, í frábæru gönguveðri. Tíminn var nú ekki af verri endanum, 3 tímar og 42 mínutur…sæmilegt bara miðað við aðra uppgefna tíma frá þessum slóðum.
Leiðin er greiðfær núna, þó nokkuð blaut á köflum. Ekkert mál er að rata þarna uppi, vörður út um allar trissur og útsýnið flott. Mæli með þessari gönguleið.Eins og vanalega þá fékk myndavélin að fljóta með…þrátt fyrir þyngdina. Skellti nokkrum myndum inn hér, tjékkið endilega á þeim og njótið.
Djúpavatn – 20.07.09
Það er víst spáð smá skjálfta á þessu svæði eftir smá…best að henda þessum myndum þá inn. Vonum nú bara að þetta svæði hverfi ekki, alltof fallegt til þess.
Gekk þetta svæði um daginn, frá Krýsuvík og inn að Djúpavatni, ca. 20km. Nokkuð gott bara. Nú eru bara þrjár göngur eftir í sumar og þá verður þetta sumar fullkomið!
<
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…
Frá…
…botni Arnarfells…

…og alla leið upp á topp!

Hef ekki stoppað síðustu vikur, kleif Arnarfellið um daginn í geggjuðu veðri…snilld! Í gær var það svo 20km. ganga upp að Djúpavatni og til baka, myndir frá henni seinna.
Svei mér þá ef þetta er ekki að verða göngusumarið mikla…fullyrði það hér og nú að ég hef aldrei á ævinni verið í eins góðu formi og núna…og það er frábært! Framundan eru tvær stórar göngur…nánar um þær síðar
3. göngufærslan…
í röð…magnað!
Skellti mér upp á Helgafellið í kvöldsólinni á mánudaginn…yyyndislegt! Að þessu sinni var engin myndavél með, einungis sími…fín tilbreyting og smá munur á þyngd.
Helgafell í kvöldsólinni
Toppurinn!

Gangan var svo sem ekki erfið að þessu sinni, komst upp á góðum tíma, 34mín. rúmlega frá bílastæðinu.

Þetta eru búin að vera ansi mögnuð vika, mánudagurinn fór í Helgafellið, á þriðjudaginn var ég upp í Þórsmörk, á miðvikudaginn varð Arnarfellið fyrir valinu…og í dag…afslöppun fyrir Akureyrarferðina á morgun…sumarið er magnað!
Kleifarvatn…
…á sunnudeginum…

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L
Úr einni göngu yfir í aðra…nú varð Kleifarvatnið fyrir valinu. Rosalega fallegt…eins og alltaf…og eins og oft áður fann maður einhvað nýtt til að mynda.
Nokkrar myndir hér að neðan…
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…
Trölladyngja & Höskuldarvellir…
…í sólinni og hitanum í gær!

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 24-70mm F/2.8L
Gekk Trölladyngju í gær með mömmu í yndislegu veðri. Svæðið skartar sínu fegursta um þessar mundir, sterkum litum og fallegum skuggum í sólinni…mæli með því. Nú, ef maður nennir ekki þangað þá er Keilir í næsta nágrenni…
Í dag var svo haldið upp í Krýsuvík, að ganga kringum Kleifarvatn…myndir koma seinna.
Hérna koma svo nokkrar myndir frá göngunni í gær…
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…
Helgafell – 13.04.09
Úr einni göngu yfir í aðra…

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L
Ég gekk upp á Helgafell í dag, ákvað að nýta veðrið og auka orkuna sem situr í líkamanum um þessar mundir.
Helgafell er töluvert erfiðara viðureignar en Úlfarsfell, fjallið er mun hærra (ca. 350m), það er vel bratt á köflum og mjög grýtt. Eins og sjá má á myndunum hér að neðan er lítið um gras eða annað grænt. Þetta er hins vegar góð ganga og þess virði á endanum…þegar á toppinn er komið er útsýnið frábært í allar áttir. Skyggnið var gott í morgun og því hægt að sjá Snæfellsjökul í fjarska.
Tjékkið endilega á myndunum hér að neðan og fleiri má finna hér.
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…
Úlfarsfell – 11.04.09
Var að koma niður af fjallinu…

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L
Soldið skrítið að skrifa um eitthvað sem var að gerast fyrir nokkrum tímum síðan…en fyrst að myndirnar eru tilbúnar þá til hvers að slóra
Úlfarsfell og svæðið í kringum það er mjög fallegt, útsýnið er gríðarlega gott þar sem séð er í allar áttir. Frá Esjunni, yfir í Bláfjöllin, Krýsuvík og jafnvel glittar smá í Reykjanesbæ í fjarska. Gangan sjálf er nú ekki erfið, ég var ca. 1klst. upp á topp, frá honum er síðan hægt að ráfa um fjallið…mæli með því. Farið bara varlega, á þessum tíma árs er jarðvegurinn enn mjög blautur undan snjónum og því auðveldlega hægt að sökkva í leðjunni…eins og ég gerði á nokkrum stöðum.
En jæja…aftur út á pall með kaffibolla…
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…
Sveifluháls

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L
Eftir gönguna í Elliðaárdalnum á sunnudag fór ég strax í aðra…nægur kraftur til staðar og adrenalínið á fullri ferð.
Að þessu sinni varð Sveifluháls í Krýsuvík fyrir valinu, enn ein perlan sem leynist hérna í bakgarðinum mínum. Þetta er gífurlega fallegt svæði þar sem útsýnið er ansi magnað, Bláfjöllin, Reykjavík, Djúpavatn, Kleifarvatn og margt annað ber fyrir augum þegar staðið er á háum tindum hálsins.
Ég náði ekki að ganga allan hálsinn í þetta sinn þar sem orkan varð fljótt á þrotum og íllir verkir komu upp…en Sveifluháls bíður mín, ef ekki seinna í vetur þá pottþétt í sumar.
Tjékkið á þessu slideshow’i hér að neðan…
(hægt er að fletta með örvunum á lyklaborðinu)Myndirnar í heild sinni er hægt að finna hér, endilega kíkið við og njótið þessa fallega svæðis…virkilega þess virði!
Enn ein náttúruperlan…
…í Krýsuvík….Austurengi og Austurengjahver.
Gekk upp á þetta svæði í dag í fyrsta sinn….og þvílík fegurð! Gangan þangað er tiltölulega auðveld, keyrt er upp að Grænavatni og þaðan gengið upp hlíðina. Gangan sjálf er ca. 1,7km. og tekur um 25mín. Ég verð þó að vara við að í dag var svæðið mjög blautt, mikið um drullu sem auðvelt er að sökkva í. Því vil ég benda á að ganga á stígnum eða í gönguförum sem fyrir eru…bara til öryggis. Auk þess er Austurengi háhita svæði…farið því varlega á vappinu þar
Austurengi er gríðarlega fagurt svæði, litríkt og fjölbreytt….algjört konfekt fyrir myndatökur. Hverasvæðið er tiltölulega stórt, í kringum hverinn sjálfan er mikið um fallegan gróður, litríka leðju og steina.
Því miður sendur til að virkja þetta fagra svæði, Hitaveita Suðurnesja stendur fyrir þeim áformum. Ég furða mig ekki á þessari ákvörðun…svæðið er gríðarlega öflugt og mikil orka sem liggur ofan í jörðinni. Hins vegar er ég ekki hlynntur þessum áformum! Með þessu uppátæki sínu er Hitaveita Suðurnesja að skemma eitt fallegasta svæði landsins, landsvæði sem og útivistarsvæði sem er að verða vinsælla og vinsælla meðal íbúa höfuðborgarsvæðis.
Hér með ætla ég að setja punkt við þessa færslu og leyfa myndunum að taka til máls…
Austurengjahver

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L
Horft upp Austurengjahver

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…



































