» Búnaður
Phase One 645DF + Phase One P30+
Nú er ég búinn að eiga þetta kombó í rúma 3 mánuði og kominn tími á smá álitsfærslu eins og lofað var.
Fyrst er það vélin, Phase One 645DF, eða skriðdrekin eins og kalla má hana. Byggingin á vélinni kom mér skemmtilega á óvart. Í fyrstu bjóst ég við þungri og viðkvæmri vél sem myndi sóma sér best í stúdíóinu, allt annað væri síðan góður bónus. Það kom mér strax á óvart hvað vélin er vel byggð, allur frágangur til sóma og engin viðkvæmni sjáanleg…frábært! Þar sem vélin er sér og digital hlutinn sér þá er hún mjög auðveld í notkun, takkarnir fáir en þeir sem eru eru einhvern veginn á réttum stöðum og því auðvelt að stjórna öllu. Frágangurinn á öllu gúmmí er flottur og þolir boddýið því ansi margt, hita, kulda, regn o.fl. Annað sem maður tekur strax eftir er hvernig þyngdin dreifist á boddýið þegar bakið og linsan eru komin á, punkturinn er á réttum stað og vélin helst þá vel í hendi…já eða á gamla Manfrotto þrífótnum mínum.
Kostir : bygging, auðveld í notkun, þyngdarpunktur, viewfinder, möguleiki á aukahlutum, s.s. bökum.
Gallar : batterý, gengur fyrir 6AA stykkjum sem verður að teljast óvenjulegt á digital tímum. Flókið custom function kerfi í byrjun, nauðsynlegt að lesa manualinn þegar maður fer að skoða þau betur.
Næst er það digital bakið, heilinn sjálfur, Phase One P30+. Þetta er stöffið sem allt snýst um og kosturinn við að fara í MF er að geta skipt um bök þegar ný koma út…stór kostur enda fjárfesting til lengri tíma. Þetta ákveðna bak er 32mp með 1,3 crop factor. ISO sviðið á því er breitt, frá 100-1600, þó verða myndirnar kornóttar á 1600 eins og við mátti búast. Formattið á því er 4:3. Það skilar 12 stoppa dynamic range og 16 bita litadýpt…og var þetta það fyrsta sem ég tók eftir þegar ég fór að nota bakið…þessi rosalega dýpt í skuggasvæðum og háljósum.
Í notkun er bakið mjög auðvelt eins og vélin. Á því eru 4 takkar og skjár á milli þeirra. Takkarnir eru stórir og gerðir sérstaklega til þess að hægt sé að nota þá við allar aðstæður, í hönskum o.fl. Byggingin á því er frábær og þolir það nánast allt…eins og nokkur vídjó sýna á vefnum. Það þolir háan hita, mikið frost, sandfok og rigningu. Smellir því á vélina og það er strax tilbúið til notkunar. Skjárinn á bakinu er hins vegar ekki upp á marga fiska. Ég er vanur stórum og góðum skjáum frá Canon og varð því fyrir smá vonbrigðum þegar ég byrjaði að nota þennan, fannst eins og ég væri að nota gamla 5D aftur. Phase One menn hafa lagað þennan stóra galla í nýju línunni sinni, komið með stærri og betri snerti skjá. Hingað til hef ég skotið mest beint í tölvu með Fire Wire snúru og reynist það vel, skjárinn spilar þá mun minna hlutverk.
Kostir : bygging, eins og skriðdreki, auðvelt í notkun, þyngd.
Gallar : lítill skjár, batterýs notkun, auto WB er stundum út úr kú.
Þetta álit mitt er byggt á þessum fyrstu mánuðum sem ég er búinn að nota settið og er ekki skrifað í neinum vísindalegum tilgangi, aðeins til gamans. Á leðinni er síðan færsla um tvær linsur. Hérna má svo finna nokkrar myndir teknar með þessu setti.
Er þetta fyrsta MF digital vél sem ég nota. Áður notaði ég Canon 1Ds Mark III.
T
H4D-40
…jább…nördalegt þráðaheiti en samt svo nauðsynlegt!
Hasselblad kynnti í vikunni nýja vél í medium format línunni sinni. Nú hef ég ekki oft bloggað um svona nördaskap en ég réð ekki við mig í þetta sinn.
Þetta skrímsli er rosalegt, tæknilega og verðlega enda verður verðmiðinn í kringum 20þús. USD út í hinum stóra heimi.
Ég renndi lauslega í gegnum fréttatilkynninguna frá svíunum og rak þar augun í markhópinn sem þessi vél á að sækja á…eða heilla…en það eru hinir ungu ljósmyndarar í faginu. Það finnst mér magnað því hingað til hafa ungir ljósmyndarar, þeir sem eru hugsanlega að stíga sín fyrstu skref sem atvinnuljósmyndarar, verið að mynda aðallega með DSLR vélum. Vélum sem henta mjög vel í flest þau verkefni sem ljósmyndari fæst við nú til dags. DSLR vélar í dag bjóða líka upp á gríðarlega góð gæði, full frame vélar með tugi megapixla, góð fókuskerfi og mikla litadýpt. Bættu við góðri linsu og þú ert með magnað vinnutól. Er það ekki allt sem maður þarf? Já og nei : )
Að mínu mati er þetta rétt skref hjá Hasselblad. Ef að væri ekki fyrir svona skref þá væru tækjanördarnir í faginu löngu hættir…
T
Radio triggerar f. stúdíóljós
Ég hef af og til verið að fá spurningar um hvernig græju ég nota til þess að skjóta af Bowens ljósunum mínum þráðlaust….fínt að svara því bara hérna :)
Þar sem ég hef ennþá ekki náð að réttlæta fyrir mér að kaupa Pocket Wizard dótið þá nota ég græju sem ég fann á eBay.
Þetta eru Wireless Radio Trigger sem fást á ca. $20 USD með heimsendingu af eBay. Þar sem þessir gaurar nota radio bylgjur þá virka þeir vel við erfiðar aðstæður, t.d. úti í miklu sólskini og skjóta vart feilskot. Sendirinn sem smellur í flash skóinn á vélinni notar rafmagn af henni, móttakarinn sem fer í ljósin nota 2x AAA batterý og endast þau mjög vel (ég hef ennþá ekki skipt um í mínum eftir ca. 2 ára notkun).
Sync hraðinn sem skráður er á þá er 1/250sec. Ég held að það sé ekki rétt þar sem þegar ég nota mína í 1/200sec. byrja ég að sjá svarta rönd á myndunum, þ.e.s.a. þeir ná ekki að synca á svona miklum hraða. Þetta finnst mér ekki skipta neinu máli þar sem ég skýt oftast í 1/100-1/125sec.
All in all, þetta er snilldar græja fyrir þá sem ekki vilja gefa frá sér nýra fyrir Pocket Wizard.
Wireless Radio Trigger fá því 9 rassa af 10 hjá mér.
Val á linsu
Í framhaldi af grein minni um val á myndavél (hér að neðan) kemur þessi pistill. Ég ætla að stikla á því stóru sem að mínu mati skiptir máli og sjálfur fer ég eftir þegar kemur að því að velja linsu. Val á linsu er að mínu mati oftast auðveldara heldur en val á myndavél, það er vegna þess að maður er kominn með ákveðna hugmynd hvað mann langar í eða í hvað linsan verður notuð. Þessi stutti pistill er fyrir þá sem ekki vita þessa hluti eða þá sem eru kaupglaðir og vilja bara nýja linsu :)
Í hvað ertu að fara að nota linsuna?
Þetta er nú auðvelt…eða hvað? Til eru 3 linsuflokkar (leiðréttið mig ef það er rangt) og miðað er við 50mm, þ.e.
=50mm -> venjuleg/normal linsa (standard)
>50mm -> aðdráttarlinsa (telephoto)
Við þessa þrjá flokka bætast svo macro linsur sem notaðar eru til þess að mynda myndefni nálægt, þ.e. þær ná að fókúsa mun nær myndefninu en hinar linsurnar. Því nýtast macro linsur sér vel þegar mynda á t.d. blóm, regndropa eða skordýr :)
Hjalti G. Hjartarsson – Canon 20D + Canon 100mm F/2.8 @ 100mm
En varðandi flokkana þrjá, hvenær þarf maður á þessum linsum að halda?
Hjalti G. Hjartarsson – Canon 5D + Canon 17-40mm F/4 @ 17mm
=50mm linsur (normal) eru…..ja eins og nafnið ber til kynna, venjuleg/hefbundin vídd. Þær nýtast því í mjög margt, allt frá landslagsmynda til mannlífsmynda.
>50mm linsur falla í aðdráttarflokkinn. Þær eru því notaðar þegar áætlunin er að komast nær myndefninu án þess að hreyfa sig úr stað….hljómar vel :) Aðdráttarlinsur eru mikið notaðar á íþróttaviðburðum, t.d. í fótbolta þegar ljósmyndarinn “verður” að vera utan vallar að mynda. Einnig er hægt að nota þær í portretljósmyndun, þegar áætlunin er að ná skarpri mynd af manneskju en skilja bakgrunninn eftir í móðu. Að sjálfsögðu nota fuglaljósmyndarar aðdráttarlinsur mikið.
Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 70-200mm F/2.8L IS @ 200mm
Þetta er bara lausleg úttekt á þessum flokkum en þó ætti hún að gefa þér góða mynd af því sem til er þarna út á linsumarkaðinum og hvað ætti að henta þér í leit að nýrri linsu.
Ljósop
Þetta skýrist nokkurn vegin í framhaldi af því þegar þú verður búinn að ákveða í hvað þú ert að fara að nota linsuna. Ljósop (F-tala) virkar þannig að þeim mun stærra ljósop (lægri F-tala), þeim mun minni birtu þarf linsan til þess að taka mynd. Því henta linsur með stórt ljósop vel í innimyndatökur, t.d. Canon 50mm F/1.8 linsan. Íþróttaljósmyndarar nota einnig “bjartar” linsur til þess að geta notað lægri lokunarhraða og fryst með því hreyfingar íþróttamanna, t.d. Canon 70-200mm F/2.8 linsuna.
Að mínu mati skiptir ljósop ekki eins miklu máli þegar kemur að landslags- og náttúrumyndatökum þar sem þær myndir eru oftast teknar að degi til og lítið ljósop notað (stærri F-tala). Einnig býður þessi tegund ljósmyndunar upp á notkun þrífótar. Nánar um ljósop má lesa hér.
Skoðaðu – Prófaðu!
Eins og með myndavélar er mjög mikilvægt að prófa linsur líka, athuga almenna hluti eins og þyngd, stærð (í fullu zoomi t.d.), fókushraða og byggingu. Þessir hlutir skipta miklu máli þar sem þeir geta haft áhrif á myndirnar sem til verða, t.d. ef linsan er of þung eykur það líkurnar á hreyfðum myndum. Hægt er að fá að prófa linsur í öllum þeim verslunum sem selja þær, t.d. Canon í Beco eða Nýherja, Nikon í Ormsson og Sigma í Fótoval.
Því ætla ég að segja það aftur, prófa-prófa-prófa! :)
Að lokum, Nýtt eða notað?
Ætla nú ekki að hafa þetta langt þar sem þetta er mjög persónubundið, sumir vilja eiga allt nýtt en aðrir vilja hluti með “sál”. Þarna úti er nóg til af notuðum, ódýrum og vel með förnum linsum, þarft einungis að leita að þeim. Ég get mælt með stöðum eins og Ljósmyndakeppni, þar er fólk að selja linsur sem það notar ekki lengur eða er að uppfæra og því oft hægt að gera góð kaup. Fyrir mitt leyti þá kaupi ég nýtt í bland við notað, ef ég þarf á hlut að halda núna strax þá kaupi ég hann nýjan en ef ég get beðið þá set ég auglýsingu og bíð þolinmóður :) En ég segi líka, ef peningar eru ekki vandamál þá keyptu nýtt, en ef þú þarft að skuldsetja þig þá er betra að leita að notuðu.
Eins og alltaf vona ég að þessi pistill komi eitthverjum að góðum notum.
Val á myndavél
Ég er meðlimur á vefnum Ljósmyndakeppni.is, umræðuvef áhugaljósmyndara á Íslandi. Þar er fólk oft á tíðum að velta fyrir sér myndavélum og merkjum, oftast eru það þeir sem eru að kaupa sína fyrstu DSLR vél, fyrir þá er valið erfitt enda um mikið úrval að ræða…..of mikið? :) Vegna þessa kemur þessi pistill með von um að hann hjálpi eitthverjum við val sitt, nokkur atriði sem ber að hafa í huga þegar ný myndavél er versluð.
Point-and-shoot eða DSLR?
Ætla ekki að útskýra þessar tvær tegundir, læt Wiki um það :)
Point-and-shoot
DSLR
Ég hugsa þetta út frá notkunargildi vélar, í hvað ætlaru að nota hana? Ef þig vantar auðvelda myndavél til þess að taka fjölskyldu-, djamm- eða aðrar “simple” myndir þá veluru þér point-and-shoot vél. Þetta eru þægilegar og litlar vélar sem passa oftast í rassvasa (varist þó að setjast á þær). En þó þær séu litlar og sætar þá taka þær nú til dags mjög góðar myndir, myndir sem koma í stórri upplausn og nýtast vel til prentunar.
DSLR vélar eru örlítið flóknari. Þetta eru vélar sem hægt er að kaupa viðbætur við, s.s. linsur, flass, o.fl. og úrvalið er mikið.
Þennan part ætla ég ekki að ræða frekar þar sem hægt er að lesa sig til á Wiki (linkarnir hér að ofan).
Prófaðu!
Þetta er mjög mikilvægt atriði að mínu mati. Svipar til þess að kaupa sér bíl, þú kaupir ekki án þess að reynsluaka :) Ljósmyndabúðir hér á landi hafa gott úrval véla og því er ekkert mál að labba inn í næstu verslun og fá að prófa. Prófaðu og sjáðu hvað þér finnst um vélina, er hún þægileg í hendi, of þung, of létt, hvernig er að horfa í gegnum hana, hvernig er stjórnkerfið….o.fl. o.fl.
Endursölumarkaðurinn
Hvernig er endursölumarkaðurinn á merkinu sem þú ert að skoða? Verður erfitt að selja vörurnar síðar meir? Er hægt að kaupa notaðar vörur frá þessu ákveðna merki? Hér á landi eru tvö leiðandi merki,  Canon og Nikon. Um merkin ætla ég ekki að fjalla nánar enda er þetta hlutlaus pistíll :) , þó er hægt að segja að Canon hefur stærri markaðshlutdeild á Íslandi en Nikon.
Úrval
Hvernig er úrval véla og aukahluta í merkinu sem þú ert að skoða? Þetta skiptir kannski okkur sem eru græjufíklar meira máli…hmm veit ekki? :) Hins vegar er gott að vita af því að þú getur keypt þér macro linsu, flass eða annað þegar þig fer að langa í það. Stóru merkin hér á landi, Canon og Nikon, hafa gott úrval aukahluta og því oftast hægt að finna eitthvað við sitt hæfi.
Þjónusta
Hvernig er þjónustan við merkið, söluaðilar, verkstæði, o.fl.?
Myndavélar bila ekki oft en þó er gott að eiga góða að þegar það gerist :) Athugaðu því hvernig þjónusta er í boði fyrir merkið sem þú ert að skoða.
Læt þessi atriði nægja og vona að þau hjálpi eitthverjum í leit sinni að myndavél. Atriðin eru eflaust fleiri en þetta er það helsta sem ég hef í huga.