Camilla & Jói – 23.01.10
Þetta fallega par var gefið saman í heimabænum þeirra…og mínum…Hafnarfirði í janúar. Ég fékk að fylgja þeim frá athöfn og þangað til að kakan var skorin. Frábær dagur og enn betra kvöld.
Hérna koma nokkrar úr brúðkaupinu…ein af parinu falleg og nokkrar af krökkunum þeirra í kirkjunni…þar sem ekki allir voru sáttir við tónlistaratriðin… : )

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 24-70mm F/2.8L

Steinar & Snæfríður – 09.01.10
Fyrsta brúðkaup ársins að baki…frábær dagur með frábæru fólki.
Brúðkaupið fór fram í Grafarvogskirkju en hún er ein af mínum uppáhalds, björt, rúmgóð og litrík…býður upp á fallegar myndir bara. Við stukkum síðan í Elliðaárdalinn og tókum myndatökuna þar…rétt áður en það byrjaði að hellirigna.
Hérna kemur ein mynd úr Elliðaárdalnum…lýst upp með aðeins einum lampa.

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 24-70mm F/2.8L
Takk fyrir mig…
Margrét Lára & Pétur Geir – 21.11.09
Einu sinni á ári breyti ég um útlit hérna á síðunni…til að halda öllu fersku og sonna. Nú er kominn sá tími ársins…
…en nú að færslunni…
…þetta fallega par var gefið saman í Dómkirkjunni í skemmtilegri kvöldathöfn. Ég kynntist Pétri fyrir nokkru síðan í gegnum ljósmyndunina og því þótti mér vænt um það þegar hann bað mig um að mynda daginn þeirra. Að sjálfsögðu stóðu þau sig frábærlega…enda ekkert annað hægt, fólk með mikla reynslu af því að vera á bakvið…og fyrir framan myndavélina…
Hérna koma þrjár myndir frá deginum þeirra…

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 24-70mm F/2.8L

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 35mm F/1.4L

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 24-70mm F/2.8L
Björgvin & Jóna – 26.09.09

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 24-70mm F/2.8L
Þetta fallega par var gefið saman þann 26. september síðastliðinn og fékk ég tækifæri til að fylgja þeim eftir og skrá þennan fallega viðburð á filmu…eða minniskort. Við fengum afar skrítið veður, sól, ský, logn, rigningu…og smá snjó…allt í einum graut…þetta gat bara ekki klikkað!
Hérna koma tvær myndir í viðbót.
Starri & Sæja…
…just married…
Fyrsti kossinn rétt áður en það fór að rigna…fallegt og lukkulegt móment
Einnig…giftingin fór fram þann 3. sept…á afmælisdaginn minn…tvöföld ánægja í gangi…hehe…

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 24-70mm F/2.8L
Colin & Steinvör – 01.08.09

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 85mm F/1.2L II
Þetta eru Colin og Steinvör. Þau komu til landsins frá Bretlandi í þeim tilgangi að láta pússa sig saman…ég var svo heppinn að fá að fylgja þeim í gegnum daginn og mynda það sem fyrir augu bar. Frábær dagur með þeim og þeirra nánustu
Hérna koma nokkrar myndir í viðbót, smellið til þess að sjá þær stærri.
Björgvin & Ragnhildur – 27.06.09

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 85mm F/1.2L II
Myndaði brúðkaup hjá Björgvin og Ragnhildi í lok júní. Athöfnin var mjög falleg og fór fram í Bústaðarkirkju, get nú loks bætt henni við listan yfir kirkjur sem ég hef myndað í. Við fengum geggjað veður, smá ský, logn og mikinn hita, ákváðum því að nýta það og skelltum okkur í Elliðardalinn fyrir sjálfa myndatökuna.
Hún tókst afskaplega vel til, mikið hlegið og haft gaman…enda fátt annað hægt á svona fallegum degi. Enn og aftur, til hamingju með daginn kæru brúðhjón og takk fyrir frábæra skemmtun!
Hér að neðan eru tvær myndir í viðbót, sú fyrri úr kirkjunni og sú seinni úr dalnum.
Sara & Arnór – 09.05.09
Fyrsta brúðkaup sumarsins…fallegt og lítið útibrúðkaup á ströndinni rétt fyrir utan Stokkseyri…jább, þetta var rosalega fallegt hjá þeim Söru og Arnóri.
Til hamingju með það…
Feðgarnir biðu pollrólegir fyrir athöfn…
Á meðan brúðhjónin settu upp hringana gekk goðið hring í kringum þau…

Jább, þetta sumar mun ekki gefa því fyrra neitt eftir sýnist mér….
25.11.08
Það hafa allir gott af smá blogg pásu inn á milli…mín er búin…nú fer allt á fullt aftur…
Sit hérna fyrir framan skjáinn og var að fatta að ég átti alltaf eftir að skella nokkrum vel völdum myndum úr síðasta brúðkaupi “sumarsins” hjá mér. Hérna koma þær….af Frode og Ingibjörgu sem komu alla leið frá Noregi til þess að láta pússa sig saman…yndislegt par…eða…yndisleg hjón
————————————————————————————————————————————————————————-
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…
Björgvin & Ásdís – 26.07.08
Þetta fagra Kópavogspar lét pússa sig saman seint í júlí, á fallegum og sólríkum degi…reyndar hvössum…en hver man eftir því
Þau búa í Kópavogi, giftu sig í Kópavogskirkju og því var tilvalið að hafa myndatökuna í heimabæ þeirra líka. Við skelltum okkur því niður að Kópavogslæk og áttum þar skemmtilega töku.
Hérna koma nokkur skot…

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 85mm F/1.2L II

Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…
Jói & Fanney – 05.07.08
Jói og Fanney giftu sig undir berum himni í blíðskapar veðri á Seltjarnarnesinu. Þetta var falleg athöfn með fallegum brúðhjónum…sem stóðu sig síðan frábærlega í myndatökunni.
Hérna koma tvö skot…

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark II + Canon 85mm F/1.2L II

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 24-70mm F/2.8L
Atli & Lilja – 28.06.08
…og meira af brúðkaupum…
Þetta fallega fólk, Atli og Lilja, gifti sig á fallegum en jafnframt hvössum degi í júní. Giftingin fór fram út á Vatnsleysuströnd, í Kálfatjarnarkirkju og veislan var svo haldin í Rvk. Æðis dagur sem ég eyddi með þeim….hérna koma nokkur skot…

Tomasz Þór Veruson
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…
Hjalti & Korinna – 17.05.08
Jæja ætli það sé ekki sniðugt að birta einhvað af þessu eldra efni sem er búið að vera að safna ryki á harða disknum….hmmm….
Byrjum þá á þessu yndisbrúðkaupi þeirra Hjalta og Korinnu sem haldið var á Snæfellsnesi um miðjan maí. Þessi dagur verður lengi í minnum hafður, ekki einungis vegna þess að Hjalti og Korinna eru góðir vinir mínir heldur einnig vegna þess hve fallegt þetta brúðkaup var í raun og veru. Ég skemmti mér konunglega við þessa “vinnu”, nýtti hverja mínutu eins vel og ég gat til þess að ná sem bestu og skemmtilegustu myndum.
Að lokum skilaði ég rúmlega 150 myndum þar sem hver og ein hafði sérstaka meiningu…fullkomnaði heildina. Margar myndirnar eru óborganlegar, gleði, ánægjan, tárin, kossarnir, hamingjan….og…og…..jaaaa allt þetta og meira til náði ég að festa á minniskortin…
Hérna koma nokkrar…njótið…og að lokum vil ég þakka þessum fallegu módelbrúðhjónum fyrir yndislegt brúðkaup….og vinskapinn sem við höfum átt í gegnum tíðina….takks!

Tomasz Þór Veruson
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…
Brúðkaup 31.05.08
Langt síðan ég sýndi nýtt brúðkaupsstöff hérna á alnetinu….úr því verður hins vegar bætt á næstu dögum og vikum enda hressilega mikið að gera í þessum efnum.
Hérna koma nokkur skot úr brúðkaupsmyndatöku sem ég skaut í lok maí. Þetta yndislega par mætti upp í stúdíó til mín um kvöldið og stakk svo af í athöfnina/veisluna…frábært
Það var afskaplega gaman að mynda þau þar sem andrúmsloftið var mjög sérstakt, þau voru mjög afslöppuð (miðað við að eiga allan “pakkann” eftir) en samt pínu spennt…hehe bara gaman. Einnig…brúðurin var…og er reyndar ennþá…ólétt….
Ég þakka bara fyrir mig….og hérna koma myndirnar….

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 24-70mm F/2.8L

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 24-70mm F/2.8L

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 24-70mm F/2.8L

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 24-70mm F/2.8L
Elísabet og Smári – 12.04.08
Fyrsta brúðkaup ársins….og þvílíkt brúðkaup á Kirkjubæjarklaustri. Frábær brúðhjón, athöfnin undir berum himni í Dverghömrum, frábært veður, lööööng og skemmtileg myndataka…..bara æði! Er líka mjög ánægður með verkið sem ég skilaði af mér, mikið af nýjum hlutum sem ég prófaði í myndatökunni og tókust þeir flestir rosalega vel….nú er bara um að gera að fínpússa
Skelli nokkrum myndum inn til að sýna, restin er inn á flickr síðunni minni.

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 24-70mm F/2.8L

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark II + Canon 70-200mm F/2.8L IS

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 85mm F/1.2L II
Næsta brúðkaup er á laugardaginn…nú er það Snæfellsnesið þar sem Hjalti og Korinna bíða….verður frábært!





