Það er orðið svo langt síðan að ég skellti einhverjum landslagsmyndum hérna inn…kominn tími á nokkrar.
Ég hef reyndar lítið sem ekkert myndað landslag síðustu daga en á þó nóg af myndum á lager, frá ferð minni vestur á firði í lok júlí og byrjun ágúst.
Ferðin var æði! Við Ómar og Rán byrjuðum á því að fara á Strandirnar, eyddum góðum tíma þar og héldum svo á leið á firðina sjálfa. Við keyrðum allt sem hægt var að keyra, mynduðum fullt og flippuðum enn meira. Enduðum ferðina svo í Flatey…paradís…
Hérna koma nokkrar myndir og mun fleiri á næstu dögum og vikum. Ég var að skjóta til blands á filmu og digital…stuð stuð…og hendi öllu HINGAÐ inn…tjékkið endilega á því líka : )

© Tomasz Þór Veruson

© Tomasz Þór Veruson

© Tomasz Þór Veruson

© Tomasz Þór Veruson

© Tomasz Þór Veruson


1 Comments
Great pictures! Thanks for using Modernist.