
© Tomasz Þór Veruson
Ragnar félagi minn er í átaki um þessar mundir…og litlu veðmáli, strákurinn verður að létta sig aðeins og draga fram six pakkan…annars þarf hann að dansa niður Laugaveg í kjól… : )
Að sjálfsögðu nýti ég mér þetta tækifæri og bý til smá seríu. Ég ætla að mynda strákinn vikulega og fylgjast þannig með árangrinum myndrænt. Nú skulum við bara vona að hann verði ekki fljótur að þessu svo serían lifi í einhvern tíma…mánuði eða jafnvel ár… : )
Hérna kemur ein í viðbót frá því um daginn. Þessi tvö skot voru tekin á Mamiyuna og Ilford 100 Delta filmu, útrunna. Seinni myndin sýnir dýptina í þessari vél ansi vel, fókusinn er á tattúinu en andlitið dettur í blur. Geggjuð vél!

© Tomasz Þór Veruson


1 Comments
Love this new MF stuff that you are producing man!