Brand spanking new one…og nú með bernes…


5mynd
© Tomasz Þór Veruson


Ég kokkaði fram þessa snilld fyrr í sumar úr afgöngum sem til voru í ísskápnum. Voða einfalt en samt massíft. Rosalega holt líka…

Hráefni:
- Langlokur
- Beikon
- Pulsur
- Ostur
- Tómatur
- Rauðlaukur
- Sýrðir sveppir
- Bernessósa

Á meðan pulsan og beikonið grillast er brauðið smurt með bernes og grænmetið lagt á. Ofan á það kemur kjötið og svo osturinn. Þessu er síðan skellt á grillið og brauðinu leyft að ná hita, þangað til að osturinn bráðnar vel.

Einfalt og frekar holt…þökk sé tómatinum…. : )