Ég skellti mér með vinnufélögunum í smá göngu eftir vinnu á föstudag. Við ákváðum að massa Leggjabrjót fyrst að veðurspáin var góð. Þegar á hólminn var komið var spáin ekki góð…hún var mögnuð! Algjört logn, sól alla leið og ca. 15°C, ekki amalegt veður þó svo að hitinn gerði gönguna örlítið erfiðari.


Leggjabrjótur
© Tomasz Þór Veruson


Ganga gekk vel, þurrt á flestum stöðum og auðvelt yfirferðar. Við tókum 6 tíma í þetta, 4 í göngu og 2 í hvíld, fínn tími barasta. Mæli með þessari leið, hún er þægileg og gífurlega falleg, sérstaklega á þessum árstíma.
Við komum niður í Botn í Hvalfirði um kl. 23 og því tók ansi fallegt og rautt sólsetur á móti okkur á leiðarenda.

Fleiri myndir má finna HÉR…tjékk it!