Félagi minn spurði mig um daginn afhverju ég hef ennþá ekki gert borgara, einn hollan og grillaðan.
Þetta er svar mitt við þeirri beiðni…einn grillaður og gífurlega hollur.

© Tomasz Þór Veruson
Þessi er frekar simple…eins og flestir aðrir borgarar. Það er hins vegar ferska hráefnið sem skiptir öllu máli hér, ferskar sósur og brakandi grænmeti.
Hráefni:
- Hamborgarar
- ostur
- egg
- papríka
- gúrka
- rauðlaukur
- sýrðir sveppir
- piparsósa
- tómatssósa
- chrzan (e. horseradish)
Grilla grilla og setja saman…simple. Er þó með eitt trikk, þegar brauðin eru hituð á grillinu mæli ég með því að hita þau í heilu lagi, þannig verða þau brakandi að utan en mjúk að innan.
Smyrjið brauðin sitthvoru megin með piparsósunni, skellið grænmeti undir, egginu ofan á það, kjötinu ofan á það, meira grænmetið ofan á það, tómatssósu ofan á það, chrzan ofan á það og lokið með brauði…snilld!


1 Comments
Já takk!