Áfram með smjörið…hér kemur næsta samlokan í röðinni…

© Tomasz Þór Veruson
Þessi er mjög einföld en samt rosalega góð. Undirstaðan er kjötið, fyrsta flokks svínalundir, reyktar. Kjötið er gert skv. pólskri uppskrift og fæst það í nokkrum búðum hér á landi, t.d. Krónunni og Mini Market. Það er meyrt og rosalega bragðgott…en soldið dýrt…þó alveg þess virði.
Hráefni (2 samlokur):
- 4x brauðsneiðar
- ca. 150gr. kjöt (Polędwica á pólsku)
- 1x tómatur
- 4x sneiðar af osti
- smjör
- dijon sinnep
Leiðbeningar:
Jaaa…það þarf nú ekki beint leiðbeningar við þessar gerð : ) Skerið allt í sneiðar, skerið skorpuna af brauðinu og raðið öllu saman eftir smekk. Dass af smjöri og sinnepi á brauðsneiðarnar og bingó…svínið er til.
Namm!


1 Comments
ef það er skorpulaust þá klikkar það ekki!