Jæja, þá er fyrsta lokan til…here it goes!

Villti kjúkklingurinn
Villti kjúkklingurinn

Þessi loka varð til ekki fyrir svo löngu síðan og í fyrsta sinn sem ég gerði hana var pælingin að nýta kjúlla sem varð afgangs frá kvöldinu áður. Nú kaupi ég sérstaklega inn fyrir þessa loku…svo góð er hún : )

Hráefni (3 samlokur):
- 2x kjúkklingabringur
- 1x beikonpakki
- 1x tómatur
- 6x brauðsneiðar
- 3x sneiðar af osti
- 3x egg
- dass af tómatssósu, chrzan (e. horseradish) (fæst í Mini Market) , og nokkrir sýrðir sveppir (fást í Mini Market)
- smjör til steikingar

Leiðbeningar:

- Byrjum á því að steikja kjúllan upp úr smjöri, kryddið vel með salt og kjúllakryddi. Steikið síðan eggin á sitthvorri hliðinni.
- Beikonið steiki ég alltaf í ofni til þess að fá það vel stökkt…mæli með því, drefið því á bökunarpappír og voila…

- Ég rista brauðið og smyr það síðan með pólska undrinu chrzan. Þetta svipar soldið til sterks sinneps en með mun mýkra og jafnvel rjómakenndra bragði…vel sterkt og gott.

- Sneiðum tómatinn og sveppina í þykkar sneiðar. Sveppirnir eru soldið súrir á bragðið og vega vel á móti fitunni sem er í beikoninu.

- Þá er bara að setja Villta kjúkklinginn saman. Brauð-chrzan-tómatur-kjúlli-ostur-egg-tómatssósa-beikon-sveppir-brauð

Fáranlega einfalt en samt svooo gott….

T