…jább…nördalegt þráðaheiti en samt svo nauðsynlegt!



Hasselblad kynnti í vikunni nýja vél í medium format línunni sinni. Nú hef ég ekki oft bloggað um svona nördaskap en ég réð ekki við mig í þetta sinn.

Þetta skrímsli er rosalegt, tæknilega og verðlega enda verður verðmiðinn í kringum 20þús. USD út í hinum stóra heimi.

Ég renndi lauslega í gegnum fréttatilkynninguna frá svíunum og rak þar augun í markhópinn sem þessi vél á að sækja á…eða heilla…en það eru hinir ungu ljósmyndarar í faginu. Það finnst mér magnað því hingað til hafa ungir ljósmyndarar, þeir sem eru hugsanlega að stíga sín fyrstu skref sem atvinnuljósmyndarar, verið að mynda aðallega með DSLR vélum. Vélum sem henta mjög vel í flest þau verkefni sem ljósmyndari fæst við nú til dags. DSLR vélar í dag bjóða líka upp á gríðarlega góð gæði, full frame vélar með tugi megapixla, góð fókuskerfi og mikla litadýpt. Bættu við góðri linsu og þú ert með magnað vinnutól. Er það ekki allt sem maður þarf? Já og nei : )

Að mínu mati er þetta rétt skref hjá Hasselblad. Ef að væri ekki fyrir svona skref þá væru tækjanördarnir í faginu löngu hættir…

T