Rosalega er…
by Tomz on February 1, 2010
…mikið af hæfileikaríku fólki hér á landi þegar kemur að því að smíða fallegar myndir…eiginlega bara magnað! Nú er ekki lengur hægt að afsaka sig með smæð landsins…þó það sé lítið þá er nóg af mögnuðu fólki hér til staðar með brennandi áhuga á því sem það er að gera.
Undanfarið hef ég unnið töluvert með stílistum við nokkur verkefni, stílistum sem hafa bein í nefinu, sínar eigin hugmyndir í kollinum og rödd í hálsinum sem þeir nota óspart… : ) Þetta kann ég að meta því það er fátt betra en að vinna með fólki sem veit hvað það vill, það gerir alla vinnu enn skemmtilegri. Þó við séum ekki búin að lifa lengi utan torfkofanna þá erum við komin ansi vel á leið í listsköpuninni…kannski er það MTV- og PoppTíVí- kynslóðinni að þakka…hmmm…
Anyway, hvað listina varðar þá er framtíðin ansi björt…og spái ég hér með að árið 2010 verði gott og komi jafnvel á óvart…usss ekki fleiri orð… : )

Leave your comment