Tímamót
by Tomz on January 16, 2010
Ég stend á tímamótum um þessar mundir…

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 16-35mm F/2.8L
Fyrir 15 árum síðan, þann 16. janúar ‘95, lá ég umvafinn snjó, án neinnar hugmyndar um hvað hafði gerst né hvort eitthvað bíði mín. Með hálfa meðvitund stefndi ég óðum á ljósið en var dreginn aftur inn í þennan heim af björgunarsveitarmönnum…hetjum í mínum huga. Án þeirra, og hundanna, væri ég ekki hér að minnast þessara tímamóta. Ég á þeim líf mitt að þakka.
Í dag hefur logað á kerti hjá mér, kerti fyrir þeim sem lentu í flóðinu, fyrir þeim sem misstu í flóðinu, fyrir hetjunum okkar sem björguðu úr flóðinu og fyrir þjóðinni allri sem stóð saman á þessum erfiðu tímum…kerti þetta logar fyrir ykkur öll.
En ég fagna líka öðrum tímamótum um þessar mundir. Á mánudaginn næsta, 18. janúar, verða liðin 17 ár frá því að ég kom hingað til lands. Ég fagna þessari ákvörðun enda hefur hún leitt margt gott af sér…verulega margt.
Hér að neðan eru nokkrar myndir frá Súðavík, allar teknar haustið ‘08.

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 16-35mm F/2.8L

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 16-35mm F/2.8L

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 16-35mm F/2.8L

2 comments
Knús! Er líka með kveikt á kerti, mjög falleg lesning hjá þér. Kraftaverkin gerast svo sannarlega!
by Rakel Ósk on 16 January, 2010 at 9:36 pm #
Takk Rakel mín :)
by Tommi on 17 January, 2010 at 11:04 pm #