Jæja, þá er komið að síðasta setti mynda sem ég set inn frá þessari frábæru ferð.

Við enduðum ferð okkar um Vestfirði á algjörum ævintýrastað…stað sem ég hef aldrei heimsótt áður og vissi ekki einu sinni af…Gjögur. Þessi litli bær var áður mikill fiskistaður, þaðan fóru menn á hákarlaveiðar og veiddu víst myndarlega. Nú standa þar eftir nokkur sumarhús sem fólk dvelst í yfir björtustu mánuði ársins.

Hérna koma nokkrar myndir frá staðnum, smellið til þess að sjá þær stærri.

Takk fyrir að skoða West ’09 myndirnar mínar… :)
Allar myndirnar má skoða í heild sinni hér.


West '09 - Gjögur III West '09 - Gjögur IV


West '09 - Gjögur I West '09 - Gjögur II