Undanfarið hef ég verið að fara í gegnum myndasöfnin mín, flokka þau upp á nýtt og samræma betur…allt til þess að vinnsluflæðið verði enn betra. Diskarnir eru orðnir alltof margir, fullir af myndum frá síðustu…jaa…mörgum árum. Það er samt gaman að skoða þetta, rifja upp hvar maður var og hvað maður var að gera á ákveðnum tímum á “ferlinum”. Hef líka tekið eftir því að margt af því sem ég hef skotið síðustu árin hefur bara ekki ratað lengra en í tölvuna hjá mér…eða kannski í örfáa tölvupósta og prentstofur…en það situr eftir og bíður eftir að fleiri fái að sjá. Reynum að bæta úr því við tækifæri.

Þetta er Sigrún og hefur hún birst hér á síðunni áður. Þessi mynd var skotin snemma árs 2008.


Sigrún
Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 85mm F/1.2L II