…í dag.



Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 24-70mm F/2.8L


Ég skellti mér á Suðurlandið í dag með fríðu föruneyti. Planið var…jaaa…það var ekkert plan, ekkert nema að mynda og leika…og það tókst vel til.

Við keyrðum alla leið út á Reynisfjöru, með nokkrum góðum stopppum á leiðinni, og horfðum á sólina setjast þar. Þvílík fegurð og svo þess virði! Staðirnir á leiðinni gáfu þó fjörunni ekkert eftir og ber þar hæst að nefna Sólheimajökul sem reyndi að gleypa mig…tvisvar. Fyrra skiptið skrifast alfarið á mig, ég taldi það mikilvægara að ná góðri mynd heldur en að forða mér frá þegar ísinn byrjaði að brotna undan löppunum. Hvað gerir maður ekki fyrir listina?!

Hér er ég að væla undan kulda…smekklegt… :)


The Photographer himself
Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 24-70mm F/2.8L


All in all var þetta frábær rúntur…nóg af sól og myndum. Talandi um sól þá er eins og haustið hafi komið aftur þarna á svæðinu…sólin kom upp, kuldinn hvarf og grámyglan fór í frí…æði!

Ég skelli nokkrum myndum inn hér að neðan, tjékkið endilega á þeim stærri með því að smella. Restina má finna hér

————————————————


Seljalandsfoss I Seljalandsfoss II


Sólheimajökull III Sólheimajökull IV


Sólheimajökull VIII Sólheimajökull X


Reynisfjara IV Reynisfjara V