Keilir…check!
by Tomz on August 30, 2009
Keilir í góða veðrinu í morgun…

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 35mm F/1.4L
Ég gekk upp á Keili í morgun í æðislegu veðri, 15°C hita og smá golu. Þetta var í fyrsta sinn sem ég geng upp á sjálft fjallið, hingað til hef ég einungis gengið um nágrenni þess og því var kominn tími til að sigra það.
Gangan byrjaði á Höskuldarvöllum, gekk þar meðfram hrauninu í ca. 4.5km. Það vildi ekki betur til að ég labbaði framhjá stígnum sem liggur yfir hrauntunguna og að sjálfu fjallinu, ég gekk því alltof langt sem gerði það erfiðara að fara yfir hvassa hraunið. Það hafðist þó og var ég kominn upp að fjallinu eftir ca. 7km skv. GPS tækinu. Þegar að því var komið sá ég einungis einn göngustíg upp og fór hann. Það er samt ekki rétt leið að ég held, þessi var mun erfiðari og brattari en hinn hefbundni stígur…komst að þessu eftirá þegar ég sá hinn á leiðinni niður :)
Á toppinn kom ég á góðum tíma, 1klst. og 13mín. Útsýnið frá Keili er magnað, sést vel í allar áttir og landslagið er stórbrotið.
Leiðin niður var auðveld, ég fór hratt niður göngustíginn og var kominn aftur á bílastæðið á tímanum 2klst. og 13mín., 11km. seinna. Flottur tími bara. Mæli með þessari göngu og þá sérstaklega að fara upp fjallið frá hlið, mun skemmtilegra útsýni að mínu mati.
Hérna að neðan eru nokkrar myndir frá göngunni, smellið til þess að sjá þær stærri.












