Úlfarsfell – 11.04.09
by Tomz on April 11, 2009
Var að koma niður af fjallinu…

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L
Soldið skrítið að skrifa um eitthvað sem var að gerast fyrir nokkrum tímum síðan…en fyrst að myndirnar eru tilbúnar þá til hvers að slóra :)
Úlfarsfell og svæðið í kringum það er mjög fallegt, útsýnið er gríðarlega gott þar sem séð er í allar áttir. Frá Esjunni, yfir í Bláfjöllin, Krýsuvík og jafnvel glittar smá í Reykjanesbæ í fjarska. Gangan sjálf er nú ekki erfið, ég var ca. 1klst. upp á topp, frá honum er síðan hægt að ráfa um fjallið…mæli með því. Farið bara varlega, á þessum tíma árs er jarðvegurinn enn mjög blautur undan snjónum og því auðveldlega hægt að sökkva í leðjunni…eins og ég gerði á nokkrum stöðum.
En jæja…aftur út á pall með kaffibolla… :)
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…





One comment
[...] einni göngu yfir í [...]
by Tomasz Þór Veruson » Helgafell - 13.04.09 on 13 April, 2009 at 7:37 pm #