…eru búnar hjá mér í ár…frábær tími að baki.



Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 85mm F/1.2L II


Myndatökurnar í ár voru ansi fjölbreyttar eins og ég bjóst við, krakkarnir eru farnir að spá í þessu meira…og í leiðinni gera meiri kröfur :)
Í ár myndaði ég í riiisa stóru vöruhúsi, á fótboltavelli og í reiðhöll…við þetta bættust síðan þó nokkrar stúdíómyndatökur. Krakkarnir komu flestir hverjir með sínar hugmyndir/kröfur í myndatökurnar, vildu fá flottar myndir sem endurspegla þau sjálf…hvort sem um ræðir fataval eða tómstundir eða aðra hluti…”…myndirnar verða að vera flottar!”

Ég kenni/þakka internetinu fyrir þessar kröfur í ár (og reyndar síðustu ár), flestar þessar fermingarmyndir rata á netið hjá krökkunum, facebook, blogg, myspace…og þú setur ekki hvað sem er þangað inn… “…myndirnar verða að vera flottar!” :)

T