
Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L
Eftir gönguna í Elliðaárdalnum á sunnudag fór ég strax í aðra…nægur kraftur til staðar og adrenalínið á fullri ferð.
Að þessu sinni varð Sveifluháls í Krýsuvík fyrir valinu, enn ein perlan sem leynist hérna í bakgarðinum mínum. Þetta er gífurlega fallegt svæði þar sem útsýnið er ansi magnað, Bláfjöllin, Reykjavík, Djúpavatn, Kleifarvatn og margt annað ber fyrir augum þegar staðið er á háum tindum hálsins.
Ég náði ekki að ganga allan hálsinn í þetta sinn þar sem orkan varð fljótt á þrotum og íllir verkir komu upp…en Sveifluháls bíður mín, ef ekki seinna í vetur þá pottþétt í sumar.
Tjékkið á þessu slideshow’i hér að neðan…
(hægt er að fletta með örvunum á lyklaborðinu)Myndirnar í heild sinni er hægt að finna hér, endilega kíkið við og njótið þessa fallega svæðis…virkilega þess virði! :)


3 Comments
Svakalega eru þetta flottar myndir hjá þér.
Sveifluháls er á listanum hjá mér og ég verð að segja að þessar myndir skemma ekki fyrir tilhlökkuninni.
@Svanberg
Þetta er einmitt alveg gífurlega fallegt svæði. Er á leiðinni þangað aftur í vor, þegar fer að hlýna. Verður þá gaman að sjá breytingarnar í náttúrunni.
[...] reyndi aftur við Sveifluháls á sunnudag. Áður var ég búinn að reyna einu sinni, í vetur. Það gekk ekki betur en það að ég þurfti að snúa við vegna líkamlegs ástands. Að [...]