Þingvellir IV
Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L

Hversu mikið af sýklum ætli sé á tímaritum sem liggja fram á biðstofum sjúkrahúsa? Var áðan upp á læknavakt og fór að spá í þessu eftir að ég sá eina konu nánast snýta sér ofan í eitt blaðið…ansi hressandi það…

Svo var þarna lítil stelpa sem gekk að vatnsvélinni, náði sér í glas, beit og slefaði vel og vandlega í það og skilaði því síðan á sinn stað, allt undir vel vakandi auga móður sinnar…ansi hressandi það…

Ég er sjúkur um þessar mundir, með verki hér og þar í líkamanum, þó aðallega í lungum og hjarta…ansi hressandi það…

T