
Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon TS-E 45mm F/2.8
Ég stend sjálfan mig af því af og til að setjast upp í bíl með myndavélina og keyra bara af stað, án þess að vita hvert skal haldið eða breyta fyrirhuguðum plönum á leiðinni…þetta eru oft á tíðum skemmtilegustu ferðirnar! Myndirnar eru í samræmi við ferðirnar, ég mynda það sem fyrir verður án þess að skipuleggja það neitt nánar, stundum takast myndirnar vel til – stundum ekki.
Ég skellti mér til…jaa…hingað og þangað bara, hélt mér þó nálægt Selfossi mest megnið af ferðinni, heimsótti nærliggjandi sveitir og gekk á hina og þessa staði. Tjékkið endilega á myndunum hér að neðan…
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…



