Já það er rétt…síðan hefur fengið smá andlitslyftingu og andar nú betur en áður! Þetta er eitthvað sem ég hef ætlað að gera nú í langan tíma og loks gafst tækifæri til þess…þökk sé veikindunum


Breytingarnar eru þó nokkrar og ætla ég að stikla á þeim stærstu hér að neðan.

- Til að byrja með hefur myndasvæðið verið fært yfir á þessa síðu, það var áður staðsett á meginsíðunni. Með þessum breytingum er þetta orðin aðalsíðan. www.tomz.se flyst sjálfkrafa yfir á þessa síðu.

- Nýtt útlit hefur verið tekið í gagnið á blogghluta síðunnar. Gamla útlitið var orðið úrelt og þreytt og bauð ekki upp á nokkra eiginleika sem ég hef verið að leita að.

- Nýr flokkur hefur verið tekinn í gagnið á síðunni, “Ljósmyndun“, er staðsettur eftst í bannernum. Flokkurinn er gerður með viðskiptavini í huga, þar eru tegundir myndataka útlistaðar og verð skellt inn.

- Síður með nánari útlistun á myndatökum hafa verið settar upp undir flokknum “Ljósmyndun“.

- RSS kerfið hefur verið endurskoðað og endurbætt og ætti nú að virka betur en áður.


Ég vona að með þessum breytingum verði síðan enn auðveldari í skoðun og fólk hafi bara gaman af :)

T