Í framhaldi af pistli mínum um Fiðrildalýsingu í gær hef ég fengið þó nokkra tölvupósta þar sem þið óskið eftir því að fá nánari útskýringar á hinum og þessum myndum. Alltaf gaman að fá svona pósta og reyni ég að svara öllu eftir bestu getu. Finnst þó viðeigandi að skella þessu bara hérna inn og leyfa þá öðrum líka að njóta…vona að þetta nýtist einhverjum öðrum þarna úti :)

Ef þið hafið frekari spurningar þá ekki hika við að senda mér tölvupóst, netfangið er hér á síðunni.

—————————————


Ég fékk spurningu um þessa mynd af Svöfu Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík. Hvernig var myndin lýst og hvaða myndavélastillingar notaði ég?


Svafa Grönfeldt
Svafa Grönfeldt
Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark II + Canon 85mm F/1.2L II


Þessi mynd var tekin í fyrirlestrasal í skólanum þar sem mér fannst viðeigandi að mynda rektorinn í sínu daglega starfsumhverfi. Hún situr neðarlega í salnum og ég mynda hana upp á við til þess að sýna betur umhverfið sem hún er í. Til þess að útskýra þetta betur kemur hérna ein mynd..


Svafa Grönfeldt - teikning

Svafa situr fyrir miðju í salnum, neðarlega og fyrir framan hana er Canon 1Ds Mark II myndavél með 85mm F/1.2L II linsu áfastri…þar fyrir aftan er ljósmyndaradúddinn. Fyrir ofan mig er 580EX flass á standi og er það notað sem aðalljós. Það er skotið tiltölulega niður á Svöfu til þess að draga betur fram andlitsbyggingu hennar. Flassið er bert og skotið á 1/2 styrk.

Til hægri fyrir aftan Svöfu er annað 580EX flass, það nota ég til þess að lýsa betur upp salinn og gefa myndinni meiri þrívídd. Einnig til þess að fylla betur upp í skugga hægra meginn á Svöfu. Það flass er einnig bert og skotið á 1/4 styrk.

Vinstra megin við Svöfu er síðan stór, silfur reflector til þess að eyða leiðinlegum skuggum sem mynduðust undir augunum á henni.

Vélin var stillt á 1/125sek. hraða og F/4.5 ljósop.

Út frá þessu sulli varð þessi mynd til :) Vona að þið hafið gaman af þessu…


T