Smá lýsingarfróðleikur…
Fiðrildalýsing (e. Butterfly lighting) er tegund lýsingar sem notuð er við portretmyndatökur. Þessi lýsing er í grunninn uppbyggð af tveimur ljósgjöfum, hvort sem það eru tvö ljós eða ljós + reflector. Nafnið dregur lýsingin af skuggafiðrildi sem myndast undir nefi á viðfangsefninu þegar það er rétt lýst upp. Þessi tegund lýsingar er notuð hvað mest við ljósmyndun á kvenmannslandlitum þar sem hún er tiltölulega hörð og dregur fram náttúrulegu línur þeirra.
Og nú að því hvernig ég nota þessa lýsingu.

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 85mm F/1.2L II
Ég nota oftast eitt ljós sem aðalljós og annan ljósgjafa til að fylla upp í skuggasvæði. Á myndinni hér að ofan notaði ég aðalljós rétt fyrir ofan andlit, Bowens 500 haus, og silfur reflector sem Rán hélt á undir höfðinu. Með þessu móti lýsti ljósið andlitið upp og reflectorinn sá um að lýsa upp skuggasvæðin. Hér varð til þessi litli fiðrildaskuggi undir nefinu. Með því að nota silfur reflector verður til harðari birta sem ég er persónulega meira hrifinn af, andlitið verður “mýkra” og kinnbeinin dragast betur fram og verða meira sjáanleg.
Vona að þetta gagnist einhverjum þarna úti.


7 Comments
þú hljómar eins og David Attenborough
En skemmtileg pæling
Snilld!
Takk fyrir þetta
meira svona! góð færsla.. ég er líka alltaf hrifinn af smá teikningum svo maður sjái uppstillinguna líka.. *hint, hint*
Hvað gerir þá gylltur reflector? Gæti verið gaman að nota hann í svona myndatöku?
vel heppnuð hjá þér. gaman að læra líka nýtt heiti á lýsinguni
Þakka viðbrögðin!
Siggi, Sir David er snillingur og tek ég þessu því sem miklu hrósi..hehe…
Birta, njóttu stelpa og notaðu… :)
Kiddi, ég skal reyna að skella inn teikningum næst til að gera þetta skiljanlegra. Fátt annað sem maður getur gert í veikindum :)
Arnór, ef þú notar gylltan þá verður birtan ekki eins hörð og meira gyllt á litinn, samsvarar betur húðlitnum. Ég nota gylltan mikið þegar ég er að nota náttúrulega birtu úti, sérstaklega á sumrin af sólinni. Finnst það vel viðeigandi þá, birtan verður ekki eins hörð og mun hlýrri.
Matti, paramount er líka töff :)
[...] framhaldi af pistli mínum um Fiðrildalýsingu í gær hef ég fengið þó nokkra tölvupósta þar sem þið óskið eftir því að fá nánari [...]