…í Krýsuvík….Austurengi og Austurengjahver.
Gekk upp á þetta svæði í dag í fyrsta sinn….og þvílík fegurð! Gangan þangað er tiltölulega auðveld, keyrt er upp að Grænavatni og þaðan gengið upp hlíðina. Gangan sjálf er ca. 1,7km. og tekur um 25mín. Ég verð þó að vara við að í dag var svæðið mjög blautt, mikið um drullu sem auðvelt er að sökkva í. Því vil ég benda á að ganga á stígnum eða í gönguförum sem fyrir eru…bara til öryggis. Auk þess er Austurengi háhita svæði…farið því varlega á vappinu þar ;)
Austurengi er gríðarlega fagurt svæði, litríkt og fjölbreytt….algjört konfekt fyrir myndatökur. Hverasvæðið er tiltölulega stórt, í kringum hverinn sjálfan er mikið um fallegan gróður, litríka leðju og steina.
Því miður sendur til að virkja þetta fagra svæði, Hitaveita Suðurnesja stendur fyrir þeim áformum. Ég furða mig ekki á þessari ákvörðun…svæðið er gríðarlega öflugt og mikil orka sem liggur ofan í jörðinni. Hins vegar er ég ekki hlynntur þessum áformum! Með þessu uppátæki sínu er Hitaveita Suðurnesja að skemma eitt fallegasta svæði landsins, landsvæði sem og útivistarsvæði sem er að verða vinsælla og vinsælla meðal íbúa höfuðborgarsvæðis.
Hér með ætla ég að setja punkt við þessa færslu og leyfa myndunum að taka til máls…
Austurengjahver

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L
Horft upp Austurengjahver

Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark III + Canon 16-35mm F/2.8L
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…







