Jæja ætli það sé ekki sniðugt að birta einhvað af þessu eldra efni sem er búið að vera að safna ryki á harða disknum….hmmm….
Byrjum þá á þessu yndisbrúðkaupi þeirra Hjalta og Korinnu sem haldið var á Snæfellsnesi um miðjan maí. Þessi dagur verður lengi í minnum hafður, ekki einungis vegna þess að Hjalti og Korinna eru góðir vinir mínir heldur einnig vegna þess hve fallegt þetta brúðkaup var í raun og veru. Ég skemmti mér konunglega við þessa “vinnu”, nýtti hverja mínutu eins vel og ég gat til þess að ná sem bestu og skemmtilegustu myndum.
Að lokum skilaði ég rúmlega 150 myndum þar sem hver og ein hafði sérstaka meiningu…fullkomnaði heildina. Margar myndirnar eru óborganlegar, gleði, ánægjan, tárin, kossarnir, hamingjan….og…og…..jaaaa allt þetta og meira til náði ég að festa á minniskortin…
Hérna koma nokkrar…njótið…og að lokum vil ég þakka þessum fallegu módelbrúðhjónum fyrir yndislegt brúðkaup….og vinskapinn sem við höfum átt í gegnum tíðina….takks!

Tomasz Þór Veruson
Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri…


3 Comments
Takk kærlega fyrir okkur.
Þetta var fullkominn dagur og það er gott að eiga þessar eftirminnilegu myndir áfram til að muna eftir hverju einasta mómenti í brúðkaupinu.
Takk Takk takk!
Sömuleiðis kútur…. :)
[...] á Snæfellsnes í dag, langt síðan ég heimstótti þennan fallega stað, síðast var það í brúðkaupi sem ég var að mynda þar, og hefur mig alltaf langað til að heimsækja staðinn [...]