Fyrsta brúðkaup ársins….og þvílíkt brúðkaup á Kirkjubæjarklaustri. Frábær brúðhjón, athöfnin undir berum himni í Dverghömrum, frábært veður, lööööng og skemmtileg myndataka…..bara æði! Er líka mjög ánægður með verkið sem ég skilaði af mér, mikið af nýjum hlutum sem ég prófaði í myndatökunni og tókust þeir flestir rosalega vel….nú er bara um að gera að fínpússa :)

Skelli nokkrum myndum inn til að sýna, restin er inn á flickr síðunni minni.


Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 24-70mm F/2.8L


Tomasz Þór Veruson – Canon 1Ds Mark II + Canon 70-200mm F/2.8L IS


Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 85mm F/1.2L II

Næsta brúðkaup er á laugardaginn…nú er það Snæfellsnesið þar sem Hjalti og Korinna bíða….verður frábært! :)