Það var verið að hvetja mig til þess að skella þessari grein inn á bloggið líka…hérna kemur hún þá. Upphaflega skrifuð fyrir Ljósmyndakeppni.is

————
Fyrsti sýniþráðurinn…

Tek þessa mynd fyrir núna þar sem ég hef í gegnum tíðina verið að svara mörgum spurningum varðandi lýsingu hennar.

Til að byrja með, pælingin…hún var einföld…að taka einfalda, hreina og pjúra mynd. Pósan var einnig frekar einföld, “horfðu beint í linsuna, bein í baki og öxlum og vertu eins eðlileg og þú getur….án þess að brosa” :)
Við byrjuðum að skjóta þessa hugmynd með uppstillingunni hér að neðan.

Þetta er skotið á hvítum grunni og er hann yfirlýstur með einu ljósi á hálfum styrk og griddi framan á til þess að stjórna ljósinu betur.

Fyrir framan stóð ég með mína myndavél og rétt yfir öxlinni minni hægra megin var ljós með stóru softboxi á ca. 3/4 styrk, þetta var aðalljósið.

Vinstra megin við mig, nær módelinu og rétt fyrir ofan hausinn hennar var svo þriðja ljósið með litlu softboxi á og skotið á ca. hálfum styrk. Þetta ljós virkaði sem hárljós ásamt því að lýsa örlítið upp vinstri hlið módelsins.

Eftir að við náðum nokkrum myndum fannst mér vanta eitthvað meira “púff” á myndinni.
Þá datt mér í hug að bjóða fjórða ljósinu upp í dans og “búa” til flare sem kæmi þá rétt yfir öxlinni á módelinu.
Ljósið er því staðsett rétt utan rammans, skotið í gegnum grid og á ca. hálfum styrk. Við þetta fannst mér myndin batna til muna.

Meira hef ég þannig séð ekki að segja um lýsinguna á þessari mynd.
Endilega ef þið hafið spurningar þá póstið þeim hérna inn á þráðinn og ég reyni að svara þeim.