Ég hef af og til verið að fá spurningar um hvernig græju ég nota til þess að skjóta af Bowens ljósunum mínum þráðlaust….fínt að svara því bara hérna :)

Þar sem ég hef ennþá ekki náð að réttlæta fyrir mér að kaupa Pocket Wizard dótið þá nota ég græju sem ég fann á eBay.

trigger2.jpg

Þetta eru Wireless Radio Trigger sem fást á ca. $20 USD með heimsendingu af eBay. Þar sem þessir gaurar nota radio bylgjur þá virka þeir vel við erfiðar aðstæður, t.d. úti í miklu sólskini og skjóta vart feilskot. Sendirinn sem smellur í flash skóinn á vélinni notar rafmagn af henni, móttakarinn sem fer í ljósin nota 2x AAA batterý og endast þau mjög vel (ég hef ennþá ekki skipt um í mínum eftir ca. 2 ára notkun).
Sync hraðinn sem skráður er á þá er 1/250sec. Ég held að það sé ekki rétt þar sem þegar ég nota mína í 1/200sec. byrja ég að sjá svarta rönd á myndunum, þ.e.s.a. þeir ná ekki að synca á svona miklum hraða. Þetta finnst mér ekki skipta neinu máli þar sem ég skýt oftast í 1/100-1/125sec.

All in all, þetta er snilldar græja fyrir þá sem ekki vilja gefa frá sér nýra fyrir Pocket Wizard.

Wireless Radio Trigger fá því 9 rassa af 10 hjá mér.