Eftir að jólavertíðinni lauk tók ég mér smá pásu frá stúdíóinu. Jólin voru góð, mikið um skemmtilegar myndatökur en ekki mikið um tíma til þess að mynda fyrir sjálfan sig, prófa sig áfram í nýjum hlutum, s.s. lýsingu o.fl.
Ég hef af og til verið að bjóða módelum í myndatökur í þeim eina tilgangi að læra nýja hluti eða fínpússa þá sem ég fyrir kann. Þetta finnst mér frábært að gera því oft á tíðum verða til góðar myndir sem maður er almennt ánægður með. Að sjálfsögðu nýtist þetta líka módelunum vel, þær geta prófað nýjar pósur, svipi eða annað.
Hérna koma þrjár myndir frá síðustu viku. Þetta er Sigrún, frábær stelpa sem á eftir að ná langt í þessum módelbransa…..og ekki skemmir fyrir að hún er einnig að mynda sjálf :)

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 85mm F/1.2L II

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 85mm F/1.2L II

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 24-70mm F/2.8L
Ég ætla að nýta tækifærið og óska eftir fleiri módelum, ef þið hafið áhuga á myndatöku þá endilega sendið mér línu á model[hjá]tomz.se


5 Comments
flottar myndir af gullfallegri stelpu…
flott framtak þetta blogg þitt!
Flottar myndir hér og gott blogg
Þakka það strákar.
yay geðveikt blogg tómas ! takk fyrir frábært samstarf :)
Hello.
:)
“The birth took place at the couple’s home (just outside Oslo),” says the palace, adding mother and baby were both well.
Bye.