Að mynda nóttina og stjörnurnar
by Tomz on January 24, 2008
Ég hef undanfarið verið að fá spurningar um næturmyndatökur mínar og þá aðallega út í tvær tegundir þeirra: stjörnur kjúrar og stjörnur á hreyfingu. Fólk er þá aðallega að spá í tæknilegu atriðunum sem ég skal útskýra hér á eftir.
Fyrst, nokkrir praktískir punktar.
- Þrífótur er nauðsynlegur
- Gikksnúra er nauðsynleg í myndum sem teknar eru í lengri tíma en 30sec.
- Goður og hlýr fatnaður
- Vasaljós kemur sér vel, maður kemst þó langt einungis með GSM síma
Stjörnur kjúrar – frystar
Veit ekki hvernig betur ég get skýrt þetta :) En pælingin er sú að taka mynd að nóttu til með björtum stjörnum sem ekki eru á fleygi ferð með hala á eftir sér. Eins og vitað er þá er hreyfist jörðin til og ef tekin er mynd á löngum tíma er hægt að ná þeirri hreyfingu…..á mynd. Því segir það sig sjálft að ef ná á mynd af björtum stjörnum ekki á ferð þá þarf að taka myndina á stuttum tíma…..en það getur orðið erfitt að nóttu til. Ég nota blöndu af hraðri linsu, ISO og stóru ljósopi.
Tökum neðangreinda mynd sem dæmi.

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 16-35mm
Hér nota ég tiltölulega hraða linsu (með stóru ljósopi), Canon 16-35mm F/2.8L. Það fyrsta sem ég geri er að stilla fókúsinn á linsunni á infinity enda mun hún ekki ná að auto fókúsa í svona miklu myrkri. Næst stilli ég ljósopið á það hæsta sem linsan býður upp á (lægstu F-tölu), í þessu tilfelli er það F/2.8. Eitt skref eftir og það er að hækka ISO gildið. Þetta fer alfarið eftir myndavélum og smekk manna hversu hátt er farið, ef farið er of hátt verða myndirnar of kornóttar og jafnvel ónothæfar. Ég nota Canon 5D sem skilar góðum og hreinum myndum við hátt ISO.
Þessi mynd var tekin á ISO 200 og var pælingin sú að ná björtum stjörnum fram en þó að fá pínulitla hreyfingu í skýin. Það sem til verður úr þessari blöndu er mynd sem tekin er á 80sec. Hér gat ég hækkað ISO gildið upp í t.d. 400 og tekið þá myndina á mun lægri hraða, aftur á móti kæmi þá ekki þessi effect á skýjunum…..smekkurinn ræður hér því ríkjum :)
Stjörnur á hreyfingu
Þetta finnst mér mun auðveldara að framkvæma heldur en atriðið hér að ofan. Hér gerir maður akkúrat öfugt við það sem stendur að ofan, þ.e.a.s. nú viljum við taka á löngum tíma til þess að ná fram þessum hreyfingar effect. Til þess að taka mynd á löngum tíma hækka ég ljósopið og lækka ISO gildið miðað við stillingarnar hér að ofan. Stundum dugar að gera einungis annað, t.d. þegar mjög dimmt er úti þá spila ég bara með ljósopið en held ISO gildinu í hærra lagi.
Dæmi um hreyfða stjörnumynd er hér að neðan.

Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 16-35mm
Hér geri ég það sama og áður, þ.e. stilli vélinni upp á þrífót, set fókúsinn á infinity og fer svo að fikta í stillingunum. Þessi mynd er tekið á ljósopi F/4 og með ISO gildinu 400. Þessi blanda skilaði mér 364sec. mynd, rúmlega 6 mínutur. Við það að hafa fókúsinn á infinity þá fæ ég fjallgarðinn í góðan fókús og lýsingartíminn sér um hreyfinguna á stjörnunum. Myndin er tekin á svo löngum tíma að umhverfið lítur út eins og að kvöldi til, vel sést í fjöllin og fram kemur ágæt teikning í snjóinn.
Eftir á er mjög auðvelt að dæma og t.d. sé ég núna að hefði ég lækkað ISO gildið niður í t.d. 200 væri hægt að taka myndina á enn lengri tíma og þar af leiðandi fá enn lengri stjörnuhala….þetta er eitthvað sem maður gerir bara næst :)
En nóg af blaðri, vona að þetta nýtist einhverjum sem er að velta fyrir sér myndatökum í þessu mikla myrkri sem við erum í núna :) Ef þið hafið einhverjar frekari spurningar þá endilega sendið mér línu á tomz[hjá]tomz.se eða skrifið comment hér að neðan.

2 comments
Your blog is interesting!
Keep up the good work!
by Alex on 16 August, 2008 at 11:49 pm #
Thanks Alex!
by Tomz on 17 August, 2008 at 11:23 pm #