Val á linsu

by Tomz on January 21, 2008

Í framhaldi af grein minni um val á myndavél (hér að neðan) kemur þessi pistill. Ég ætla að stikla á því stóru sem að mínu mati skiptir máli og sjálfur fer ég eftir þegar kemur að því að velja linsu. Val á linsu er að mínu mati oftast auðveldara heldur en val á myndavél, það er vegna þess að maður er kominn með ákveðna hugmynd hvað mann langar í eða í hvað linsan verður notuð. Þessi stutti pistill er fyrir þá sem ekki vita þessa hluti eða þá sem eru kaupglaðir og vilja bara nýja linsu :)

Í hvað ertu að fara að nota linsuna?
Þetta er nú auðvelt…eða hvað? Til eru 3 linsuflokkar (leiðréttið mig ef það er rangt) og miðað er við 50mm, þ.e.
<50mm -> víðlinsa (wide)
=50mm -> venjuleg/normal linsa (standard)
>50mm -> aðdráttarlinsa (telephoto)

Við þessa þrjá flokka bætast svo macro linsur sem notaðar eru til þess að mynda myndefni nálægt, þ.e. þær ná að fókúsa mun nær myndefninu en hinar linsurnar. Því nýtast macro linsur sér vel þegar mynda á t.d. blóm, regndropa eða skordýr :)


Hjalti G. Hjartarsson – Canon 20D + Canon 100mm F/2.8 @ 100mm

En varðandi flokkana þrjá, hvenær þarf maður á þessum linsum að halda?

<50mm linsur eru aðallega notaðar í náttúru- og landslagsmyndatökum vegna víddar sínar, þær gefa ljósmyndaranum möguleika á því að ná hluti í forgrunni á mynd ásamt bakgrunni, t.d. rollum á beit með fjöllin í bakgrunni. Að sjálfsögðu er hægt að nota víðar linsur í annað en landslagsmyndatökum. Nú til dags eru þær t.d. notaðar í gríð og erg í tónleikamyndatökum með góðum árangri.


Hjalti G. Hjartarsson – Canon 5D + Canon 17-40mm F/4 @ 17mm

=50mm linsur (normal) eru…..ja eins og nafnið ber til kynna, venjuleg/hefbundin vídd. Þær nýtast því í mjög margt, allt frá landslagsmynda til mannlífsmynda.

>50mm linsur falla í aðdráttarflokkinn. Þær eru því notaðar þegar áætlunin er að komast nær myndefninu án þess að hreyfa sig úr stað….hljómar vel :) Aðdráttarlinsur eru mikið notaðar á íþróttaviðburðum, t.d. í fótbolta þegar ljósmyndarinn “verður” að vera utan vallar að mynda. Einnig er hægt að nota þær í portretljósmyndun, þegar áætlunin er að ná skarpri mynd af manneskju en skilja bakgrunninn eftir í móðu. Að sjálfsögðu nota fuglaljósmyndarar aðdráttarlinsur mikið.


Tomasz Þór Veruson – Canon 5D + Canon 70-200mm F/2.8L IS @ 200mm

Þetta er bara lausleg úttekt á þessum flokkum en þó ætti hún að gefa þér góða mynd af því sem til er þarna út á linsumarkaðinum og hvað ætti að henta þér í leit að nýrri linsu.

Ljósop
Þetta skýrist nokkurn vegin í framhaldi af því þegar þú verður búinn að ákveða í hvað þú ert að fara að nota linsuna. Ljósop (F-tala) virkar þannig að þeim mun stærra ljósop (lægri F-tala), þeim mun minni birtu þarf linsan til þess að taka mynd. Því henta linsur með stórt ljósop vel í innimyndatökur, t.d. Canon 50mm F/1.8 linsan. Íþróttaljósmyndarar nota einnig “bjartar” linsur til þess að geta notað lægri lokunarhraða og fryst með því hreyfingar íþróttamanna, t.d. Canon 70-200mm F/2.8 linsuna.
Að mínu mati skiptir ljósop ekki eins miklu máli þegar kemur að landslags- og náttúrumyndatökum þar sem þær myndir eru oftast teknar að degi til og lítið ljósop notað (stærri F-tala). Einnig býður þessi tegund ljósmyndunar upp á notkun þrífótar. Nánar um ljósop má lesa hér.

Skoðaðu – Prófaðu!
Eins og með myndavélar er mjög mikilvægt að prófa linsur líka, athuga almenna hluti eins og þyngd, stærð (í fullu zoomi t.d.), fókushraða og byggingu. Þessir hlutir skipta miklu máli þar sem þeir geta haft áhrif á myndirnar sem til verða, t.d. ef linsan er of þung eykur það líkurnar á hreyfðum myndum. Hægt er að fá að prófa linsur í öllum þeim verslunum sem selja þær, t.d. Canon í Beco eða Nýherja, Nikon í Ormsson og Sigma í Fótoval.
Því ætla ég að segja það aftur, prófa-prófa-prófa! :)

Að lokum, Nýtt eða notað?
Ætla nú ekki að hafa þetta langt þar sem þetta er mjög persónubundið, sumir vilja eiga allt nýtt en aðrir vilja hluti með “sál”. Þarna úti er nóg til af notuðum, ódýrum og vel með förnum linsum, þarft einungis að leita að þeim. Ég get mælt með stöðum eins og Ljósmyndakeppni, þar er fólk að selja linsur sem það notar ekki lengur eða er að uppfæra og því oft hægt að gera góð kaup. Fyrir mitt leyti þá kaupi ég nýtt í bland við notað, ef ég þarf á hlut að halda núna strax þá kaupi ég hann nýjan en ef ég get beðið þá set ég auglýsingu og bíð þolinmóður :) En ég segi líka, ef peningar eru ekki vandamál þá keyptu nýtt, en ef þú þarft að skuldsetja þig þá er betra að leita að notuðu.

Eins og alltaf vona ég að þessi pistill komi eitthverjum að góðum notum.

6 comments

Flottur pistill hjá þér…

by tábergið on 22 January, 2008 at 5:13 pm #

TAkk, takk. Akkúrat lesefni sem mig vantaði, mun þægilegra að lesa þetta á íslensku en ensku svona allavega meðan maður er algjörlega blautur á bak við eyrun í þessum efnum. Fleiri svona pistla, t.d. um lokunarhraða, brennivídd og ýmis hugtök. Einnig mætti setja inn upplýsingar um mismunandi stillingar á algengustu vélunum.

by Elva on 22 January, 2008 at 9:01 pm #

hei mynd af kæró á airwaves!

mér líst vel á bloggið þitt félagi, hjálpar helling ! hvernig standa svo málin með myndirnar frá því um daginn
:)

by Sigrún on 24 January, 2008 at 3:21 pm #

amm fullt af öðrum pistlum á leiðinni :)

Hey Sigrún, er að fara að senda þér slóðina á síðuna….

by Tomasz Þór Veruson on 24 January, 2008 at 10:15 pm #

Geðveikt ! :)

by Sigrún on 24 January, 2008 at 10:28 pm #

Þar sem þú ert svo heppinn að eiga full frame vél, þá hefði mátt minnast samt á crop sem flestir sem þurfa að lesa þetta eru að þjást með. 50mm er ekki 50mm á neinum nema FF vélum.
Annars flott.

by Valli on 15 February, 2008 at 3:26 am #