Ég er meðlimur á vefnum Ljósmyndakeppni.is, umræðuvef áhugaljósmyndara á Íslandi. Þar er fólk oft á tíðum að velta fyrir sér myndavélum og merkjum, oftast eru það þeir sem eru að kaupa sína fyrstu DSLR vél, fyrir þá er valið erfitt enda um mikið úrval að ræða…..of mikið? :) Vegna þessa kemur þessi pistill með von um að hann hjálpi eitthverjum við val sitt, nokkur atriði sem ber að hafa í huga þegar ný myndavél er versluð.
Point-and-shoot eða DSLR?
Ætla ekki að útskýra þessar tvær tegundir, læt Wiki um það :)
Point-and-shoot
DSLR
Ég hugsa þetta út frá notkunargildi vélar, í hvað ætlaru að nota hana? Ef þig vantar auðvelda myndavél til þess að taka fjölskyldu-, djamm- eða aðrar “simple” myndir þá veluru þér point-and-shoot vél. Þetta eru þægilegar og litlar vélar sem passa oftast í rassvasa (varist þó að setjast á þær). En þó þær séu litlar og sætar þá taka þær nú til dags mjög góðar myndir, myndir sem koma í stórri upplausn og nýtast vel til prentunar.
DSLR vélar eru örlítið flóknari. Þetta eru vélar sem hægt er að kaupa viðbætur við, s.s. linsur, flass, o.fl. og úrvalið er mikið.
Þennan part ætla ég ekki að ræða frekar þar sem hægt er að lesa sig til á Wiki (linkarnir hér að ofan).
Prófaðu!
Þetta er mjög mikilvægt atriði að mínu mati. Svipar til þess að kaupa sér bíl, þú kaupir ekki án þess að reynsluaka :) Ljósmyndabúðir hér á landi hafa gott úrval véla og því er ekkert mál að labba inn í næstu verslun og fá að prófa. Prófaðu og sjáðu hvað þér finnst um vélina, er hún þægileg í hendi, of þung, of létt, hvernig er að horfa í gegnum hana, hvernig er stjórnkerfið….o.fl. o.fl.
Endursölumarkaðurinn
Hvernig er endursölumarkaðurinn á merkinu sem þú ert að skoða? Verður erfitt að selja vörurnar síðar meir? Er hægt að kaupa notaðar vörur frá þessu ákveðna merki? Hér á landi eru tvö leiðandi merki, Canon og Nikon. Um merkin ætla ég ekki að fjalla nánar enda er þetta hlutlaus pistíll :) , þó er hægt að segja að Canon hefur stærri markaðshlutdeild á Íslandi en Nikon.
Úrval
Hvernig er úrval véla og aukahluta í merkinu sem þú ert að skoða? Þetta skiptir kannski okkur sem eru græjufíklar meira máli…hmm veit ekki? :) Hins vegar er gott að vita af því að þú getur keypt þér macro linsu, flass eða annað þegar þig fer að langa í það. Stóru merkin hér á landi, Canon og Nikon, hafa gott úrval aukahluta og því oftast hægt að finna eitthvað við sitt hæfi.
Þjónusta
Hvernig er þjónustan við merkið, söluaðilar, verkstæði, o.fl.?
Myndavélar bila ekki oft en þó er gott að eiga góða að þegar það gerist :) Athugaðu því hvernig þjónusta er í boði fyrir merkið sem þú ert að skoða.
Læt þessi atriði nægja og vona að þau hjálpi eitthverjum í leit sinni að myndavél. Atriðin eru eflaust fleiri en þetta er það helsta sem ég hef í huga.

