Canon 5D + Canon 16-35mm F/2.8L

Allt frá því ég tók þessa mynd þann 31. des. ’07 og lauk með því PAD verkefni mínu hefur mér fundist vanta eitthvað í daglegu dagskrána mína. Enda kannski ekki furða ef maður er búinn að halda fast utan um vélina í 365 daga, taka mynd á hverjum þeirra og sýna alheiminum (lesist: flickr).

Eftir þetta stutta en góða 17 daga frí hef ég því ákveðið að snúa mér að eitthverju öðru verkefni….og þar kemur þetta blog inn. Ég hef ákveðið að halda úti ljósmyndabloggi :) Ekki svona daglegu dóti þó, hef ekki orku í það. Hins vegar pósta ég eitthverju skemmtilegu þegar það gerist….og ég næ mynd af því.

Inn á milli þess er pælingin að skrifa stuttar greinar sem tengjast þessu skemmtilega hobbý, s.s. um búnað, stúdíó eða bara gefa holl ráð (á nokkur þannig).

Læt þetta duga í bili….